Langermasmekkur m/vasa - "Refurinn Rudy" - Blue Surf
3.790 kr
Virðisaukaskattur innifalinn
Langerma og high neck smekkurinn frá norska merkinu Baby Livia hefur verið mjög vinsæll og einstaklega þæginlegur.
Hátt hálsmál kemur í veg fyrir að matarleifar komist undir smekkinn og leki niður eftir barninu. Efnið í hálsinum er það sama og í restinni af smekknum sem gerir það auðvelt að þurrka af og skola af undir krananum og hann þornar á skömmum tíma. Langar og góðar ermar og teygja um úlnlið, stór vatnsfráhrindandi vasi tekur við matarleifunum sem enda ekki í munninum. Bakið er opið sem auðveldar barninu að hreyfa sig eðlilega.
- Ein stærð
- Frábær fyrir myndlistamanninn
- Smekkurinn er úr mjúku, vatnsfráhrindandi PU- pólýester. Hálsinn er festur og stilltur auðveldlega.